| Fréttir |
|---|
Ástarskáldið og Blótgoðar á laugardaginnNú fer hver að verða síðastur að sjá hinar sérlega skemmtilegu sýningar Landnámsseturs, Lífsdagbók ástarskálds og Blótgoða. Næst síðasta sýning á Ástarskáldinu verður á laugardaginn kl. 16 og þriðja síðasta sýning Blótgoða verður sama dag kl. 20. Miðapantanir eru í síma 437 1600 eða á landnam@landnam.is eða á midi.is. Lesa meira...
|
Feðgarnir - aukasýningar í aprílVegna fjölda áskoranna höfum við ákveðið að efna til aukasýninga á skáldavökunni um Feðgana frá Kirkjubóli 21. og 22. apríl. Kl 17 segir Silja Aðalsteinsdóttir frá Guðmundi Böðvarssyni og konunum sem voru áhrifavaldar í lífi hans. Kl. 20 segir Böðvar svo sögur úr Síðunni - sveit sem ekki er til. Í hléinu á milli sýninganna er tilvalið að fá sér ljúffengar og matarmiklar súpur. Í boði er bæði fiskisúpa og tómatlöguð kjötsúpa fyrir kr. 2500.- Miðaverð er kr. 3000 fyrir báðar sýningarnar en kr. 2000 ef aðeins önnur er valin. Miðasala er hafin. Lesa meira...
|
Sýningum á Blótgoðum og Ástarskáldinu lýkur í febrúarNú fer sýningum að fækka á hinum bráðskemmtilegu sýningum á Blógoðum og Ástarskáldinu sem báðar voru frumsýndar í haust og hafa fengið mikið lof gagnrýnenda og gesta. Fjórar sýningar eru eftir á Blógoðum, 27. janúar, 4. febrúar, 11. febrúar og 18. febrúar. Allar sýningarnar eru kl. 20. Tvær sýningar eru eftir af Ástarskáldinu 4. febrúar kl. 16 og á konudaginn 19. febrúar kl. 15. Er ekki tilvalið að fara í óvissuferð með elskuna í Borgarnes og enda á þessari fallegur rómantísku sýningu.
Þá bjóða bændur konum sínum uppá ástarjátningu sem þeir þurfa ekki að orða sjálfir
Lesa meira...
|
Leiðsögn í snjallsímum | |
Hollustuhlaðborð í hádeginu | |
| |














